Hverjir geta sótt um styrk?
Allar menntastofnanir sem sinna starfsmenntun og aðrir aðilar sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun á einhvern hátt s.s. skólar og fræðsluaðilar; stéttarfélög og aðilar vinnumarkaðar, félagasamtök og fagfélög, fyrirtæki, aðilar sem sinna náms- og starfsráðgjöf og rannsóknastofnanir og símenntunarmiðstöðvar.
Forgangsatriði árið 2010
Öll verkefni sem Leonardo starfsmenntaáætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri markmiðum áætlunarinnar en þau eru:
- Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miða að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
- Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
- Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og stafsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun.
Fyrir hvert umsóknarár kynnir Evrópusambandið forgangsatriði sem taka til sviða innan starfsmenntunar þar sem mikil þörf er talin á aðgerðum og verkefnum. Allar umsóknir verða að falla að einu þessara forgangsatriða. Fyrir umsóknafrest ársins 2010 sem er 26. febrúar eru forgangsatriðin eftirfarandi:
- Gegnsæi, viðurkenning á færni og mat á raunfærni
- Þróun gæða í starfsmenntun og aukið aðdráttarafl starfsmenntakerfa
- Þróun færni og hæfni kennara og leiðbeinenda í starfsmenntun
- Aðferðir við mat á þörf fyrir færni fólks á evrópskum vinnumarkaði
Landskrifstofa Leonardo á Íslandi hefur sett fram eitt íslenskt forgangsatriði sem er það sama fyrsta evrópska forgangsatriðið - gegnsæi, viðurkenning á færni og mat á raunfærni. Umsókn sem fellur undir þetta forgangsatriði fær 5 aukastig í mati á umsókn.
Nánari upplýsingar um forgangsatriði Menntaáætlunar ESB færðu með því að skoða auglýsingu Evrópusambandsins eftir umsóknun (call for proposals 2010 - athugið að í skjalinu er fjallað um allar áætlanir Menntaáætlunarinnar og að um Leonardo áætlunina er fjallað í kafla 3).







